Þróttmikil umræða í ritstjórunum

Getur stjórnmálamaður sem mælst hefur með eitthvað minnsta traust í pólitískri sögu látið aftur til sín taka og endurheimt fylgi flokks síns? Þetta er ein meginspurningin í Ritstjórum kvöldsins sem eru bæði þróttmiklir og yfirlýsingaglaðir á heitasta degi ársins.

Það eru þau Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri og útgefandi Fréttatímans og Steingerður Steinarsdóttir, ritstjóri Vikunnar sem setjast að þessu sinni á rökstólana með Sigmundi Erni og ræða ekki einasta pólitíska möguleika Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, heldur einnig alvöruna á bak við fimmtíu milljarða króna einkasjúkrahús í Mosfellsbæ og líkurnar á því að íslenskir útgerðarmenn fari að borga markaðsverð fyrir fiskinn í sjónum eftir að augu landsmanna beindust að færeyska landssjóðnum sem fær nú fimmfalt meira frá þarlenskum fiskimönnum eftir að útboðsleiðin var farin þar um slóðir.

Ritstjórarnir hefja upp raust sína klukkan 21:30 í kvöld.