Um 4.500 Íslendingar hafa skrifað undir rafrænt skjal þar sem þess er krafist að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra láti af embætti og þingmennsku einnig.
Yfirskrift átaksins er: Bjarni Benediktsson, þú ert rekinn. Í texta segir að þess sé krafist að Bjarni víki nú þegar.
\"Ástæður uppsagnarinnar eru fyrst og fremst það kjarkleysi, sú spilling og sá dómgreindarbrestur, sem þú hefur sýnt af þér starfi. Þú hefur vísvitandi blekkt okkur, ítrekað logið að þjóðinni og þar með gerst brotlegur við okkur öll. Gleymdu ekki að þjóðin er þinn æðsti yfirmaður.
Velferð okkar og gildi sem þjóðar eru grundvölluð á samstöðu, samkennd, heiðarleika og góðvild okkar allra. Þú hefur ekki sýnt okkur samstöðu, þú hefur ekki sýnt okkur samkennd og þú hefur ekki komið heiðarlega fram.
Hagmunaárekstrar eru alvörumál og stórhættulegir. Þeir eru til þess fallnir að skapa óöryggi og vantraust. Þrotlausu starf þínu fyrir efnafólk í landinu verður að linna nú þegar.\"
Einnig segir að þeir sem hafi ritað undir treysti Bjarna ekki til að takast á við þá spillingu sem nú þurfi að uppræta. \"Við treystum þér ekki til að gæta hagsmuna öryrkja, aldraðra og þeirra sem minna mega sín í þjóðfélaginu. Þjóðin treystir þér ekki til að gæta hagsmuna sinna. Við krefjumst þess að þú látir af störfum nú þegar, sem þingmaður og ráðherra.\"
Hvergi er minnst á aflandsfélag Bjarna í undirskriftasöfnuninni.
Sjálfstæðisflokkurinn eykur fylgsi sitt skv. nýrri Gallup könnun og er með 27% sem stendur.