Þröstur Helgason, dagskrárstjóri Rásar 1, var ekki parsáttur við fyrirspurn Fréttablaðsins um endurflutt efni á Rás 1 og taldi málið ekki eiga erindi í fjölmiðla.
„Nei, þú hefur ekkert eftir mér, ég er í sumarfríi og vil fá frið. Þetta er ekki fréttaefni,“ sagði Þröstur í samtali við blaðamann.
Fréttablaðið greinir frá þessu.
Lana Kolbrún Eddudóttur, fyrrverandi dagskrárkona, velti því upp á Facebook-síðu sinni hvort ekki mætti allt eins loka útvarpinu yfir sumartímann vegna þess að allir dagskrárliðir síðasta laugardags, fyrir utan fréttir, dánarfregnir og veður, hafi verið endurflutt efni.
Þegar leitað var til Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra vísaði hann spurningum vegna þess til Þrastar Helgasonar dagskrárstjóra. Kvað Þröstur sumarfrí starfsmanna hafa haft áhrif. Aðspurður um lögbundnar skyldur Ríkisútvarpsins í þessum efnum kvað Þröstur málið ekki eiga erindi í fjölmiðla