Þröstur leó einn þeirra sem bjargaðist

„Ég veit ekki hvernig ég komst upp á kjöl, vissi ekki fyrr en ég stóð þar. Ég átti að komast upp til þess að hjálpa þeim. Það er bara svoleiðis,“ segir Þröstur Leó Gunnarsson, leikarinn þjóðkunni, en hannvar einn skipverjanna þriggja sem komust lífs á Ísafjarðardjúpi á þriðjudag.
 
Þröstur Leó Gunnarsson leikari er einn skipverjanna þriggja sem komust lífs af þegar fiskibáturinn Jón Hákon frá Bíldudal sökk út af Aðalvík 7.júlí. Þröstur segir frá upplifun sinni í Morgunblaðinu í dag.
 

Þröstur Leó var einn fjögurra um borð þegar fiskibáturinn Jón Hákon frá Bíldudal sökk út af Aðalvík þennan örlagaríka dag, en einn félaga hans fórst í slysinu og mátti raunar litlu muna að enn verr færi því björgunargallar um borð blésust ekki út við slysið. Þröstur segir frá upplifun sinni í Morgunblaðinu í dag, en hann er alvanur sjósókn eftir margra ára útræði frá heimabyggð sinni á sunnanverðum Vestfjörðum.

Hann segir þar að honum hafi tekist eftir margar tilraunir að toga félaga sína upp á kjöl bátsins. Þar biðu þeir í um klukkustund á meðan báturinn sökk. Þá komu skipverjar á bátnum Mardísi þeim félögum til bjargar en Jón Hákon sökk endanlega nokkrum mínútum seinna.

Þröstur segir erfitt að útskýra hvers vegna báturinn sökk þennan afdrifaríka morgun. Blíðskaparveður hafi verið, veiðarfærin um borð og engin sjór var um borð í lestinni þar sem nýlega hafði verið lensað. Vindalda hafi verið á svæðinu og þegar ein slík skall á bátnum hafði töluvert af sjó endað um borð. Síðan fylgdi önnur alda og skyndilega var báturinn kominn á hvolf. Hvorugur björgunarbáturinn um borð í Jóni Hákoni, né björgunarhringir, skiluðu sér upp á yfirborðið þegar bátnum hvolfdi.

Þröstur lýsir dramatískri atburðarásinni þegar hann reyndi og tókst loks að ná félögum sínum upp kjöl skipsins. Þar biðu þeir úrkula vonar. Þegar þeir sá svo glitta í bát, sem síðan fjarlægðist þá aftur, hafi vonin fjarað út. „Þá missti ég alveg vonina, hún fjaraði út. Ég hugsaði með mér: það er kannski best að ég deyi bara hér. En þá breytir hann skyndilega um stefnu og siglir í áttina til okkar.“

Maðurinn sem fórst í sjóslysinu út af Aðalvík hét Magnús Kristján Björnsson. Hann var 61 árs gamall, búsettur á Bíldudal. Hann lætur eftir sig sambýliskonu og fjögur uppkomin börn.