Þrjú ungmenni eru í flugvélinni sem leitað hefur verið að síðan síðdegis í dag, auk flugmannsins sem er Íslendingur á fimmtugsaldri. Fréttablaðið greinir frá þessu og hefur eftir heimildum.
Leitað hefur verið að flugvélinni frá því stuttu eftir hádegi í dag en Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir í samtali við Fréttablaðið að mikill þungi hafi verið í leitinni í allan dag og verði fram á nótt.
Búið er að senda beiðnir á björgunarsveitir um allt land til að óska eftir frekari liðsauka. Gert er ráð fyrir að nýr og ferskur hópur taki við leitinni snemma í fyrramálið ef leitin hefur ekki borið árangur.
Fréttablaðið ræddi einnig við Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, hann segir leitina eina umfangsmestu leitaraðgerðum á síðari árum.
„Það er búið að láta aðstandendur vita af stöðunni,“ segir Ásgeir aðspurður.
Hann segir farþega vélarinnar hafa verið hluta af ferðahópi.
„Við höfum þær upplýsingar að þeir sem voru um borð hafi ætlað að taka myndir af íslenskri náttúru.“
Flugið hafi verið skipulagt sem útsýnisflug og til ljósmyndunar.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins voru farþegarnir þrír hluti af hópi sem kom til landsins á mánudag í frí.
Nánar er fjallað um ferðahópinn og leitina á frettabladid.is