Þrjú smit í ís­lensk­a hópn­um á EM í hand­bolt­a

Þrír leik­menn ís­lenska karla­lands­liðsins í hand­bolta eru komnir í sótt­kví, þeir Björg­vin Páll Gústavs­son, Elvar Örn Jóns­son og Ólafur Andrés Guð­munds­son.

Að sögn HSÍ greindust þeir við hefð­bundið hrað­próf í morgun en fóru svo í PCR sýna­töku hjá móts­höldurum sem staðfesti niðurstöðu.

„Við greiningu sýna komu í ljós 3 já­kvæð sýni og eru við­komandi leik­menn komnir í ein­angrun en með mjög lítil ein­kenni,“ segir í yfir­lýsingu frá HSÍ.

Að sögn HSÍ verður ekki kallað á nýja leik­menn í leik­manna­hópinn að sinni og verða nánari upp­lýsingar gefnar á morgun.

Ljóst er að um gríðarlegan skell er að ræða fyrir íslenska liðið sem mætir heims­meisturum Dan­merkur í fyrsta leik milli­riðla­keppninnar annað kvöld klukkan 19:30.