Þrjú kynferðisbrot skoðuð í eyjum

Þrjár konur hafa leitað til neyðarmóttöku kynferðisbrota á Landspítalanum í Fossvogi eftir Verslunarmannahelgina. Þetta staðfestir Eyrún Björg Jónsdóttir verkefnisstjóri neyðarmóttökunnar.

Eyrún segir í samtali við RÚV í dag að þrjár ungar konur hafi komið á móttökuna, en brotin voru öll framin á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum, Páley Borgþórsdóttir, neitar enn að upplýsa um fjölda kynferðisbrota sem tilkynnt voru til lögreglunnar á meðan á hátíðinni stóð en segir í sömu frétt að upplýsingar um störf lögreglunnar á Þjóðhátíð og tölur um afbrot verði britar í dag eða á morgun.

DV hafði samband við lögregluna í Vestmannaeyjum og bað um að fá að tala við lögreglustjórann sem þá var sagður á fundi. Páley hefur því ekki svarað fyrirspurn DV. Í frétt á vef blaðsins skorar Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta,  á fólk sem hefur verið brotið á að leita sér hjálpar: \"Það má gera víðar, bæði hjá okkur og líka hjá neyðarmóttökunni.“

Hún segir engan hafa leitað til þeirra eftir útihátíðir helgarinnar en það sé samkvæmt bókinni.