Þrjú stærstu fasteignafélög landsins, Eik, Reginn og Reitir, eru með 70 prósent markaðshlutdeild á markaði með útleigt atvinnuhúsnæði til ótengdra félaga á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag, en þar segir að efnahagsreikningar félaganna þriggja hafi stækkað um ríflega hundrað milljarða á síðustu þremur árum og eiga félögin nú fasteignir að verðmæti um 250 milljarða króna. Búast megi við því að félögin stækki enn frekar á næstu misserum.
Félögin hafa, að því er fram kemur í frétt blaðsins, keypt upp fjölda minni fasteignafélaga og fasteigna á undangengnum árum. Eik hefur ríflega þrefaldast að stærð á síðustu þremur árum og Reginn tvöfaldast. Stærsta fasteignafélagið, Reitir, hefur svo vaxið um fjórðung frá 2012. Félögin eiga nú húsnæði sem telur samtals milljón fermetra en þeir voru um 670 þúsund í maí 2012.
Lífeyrissjóðirnir eiga samanlagt um helmings beinan eignarhlut í fasteignafélögunum þremur. Þá eiga þrír stærstu lífeyrissjóðir landsins, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Gildi og Lífeyrissjóður verslunarmanna saman um þriðjungshlut í bæði Reitum og Regin og um fimmtung í Eik. Fasteignafélögin sem félögin hafa keypt á undanförnum árum hafa mörg hver að stórum hluta verið í eigu lífeyrissjóða.