Þrjú alvarleg róluslys hér á landi

Krafa hefur komið fram um að banna svokallaðar körfurólur. Á Akureyri missti drengur fyrir skömmu  tvær tennur þegar hann fékk slíka rólu í andlitið. Hann slasaðist á leikvelli við Lundaskóla. Slys hans er þriðja slysið á skömmum tíma á landinu sem flokkað er sem alvarlegt. Alvarlegasta slysið var þegar drengur hryggbrotnaði á höfuðborgarsvæðinu eftir að hann reyndi að stöðva körfurólu með átta börnum í.

Samskonar slys hafa orðið í fleiri ríkjum, þar af eitt banaslys á EES-svæðinu eftir því sem fram kom í fréttum Stöðvar 2 á dögunum. Haft var þá eftir Herdísi Storgaard slysavarnafulltrúa að þótt rólurnar teljist löglegar þyki þær skaðlegar og sé rætt um að breyta þeim eða banna alveg á evrópska efnahagssvæðinu.

Körfurólurnar njóta mikilla vinsælda hjá stórum hópi barna. Sagði starfsmaður skóla sem Hringbraut ræddi við að mörg börn myndu upplifa missi ef rólurnar yrðu fjarlægðar af leikvöllum landsins. \"Þetta er svolítið eins og Tívolí en það þarf auðvitað að setja öryggið á oddinn.\"