Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, er í viðtali í Þjóðbraut í kvöld. Þórarinn bendir á jákvæða hluti úr sínu umhverfi.
Mun færri ungmenni þurfa nú að leita sér aðstoðar vegna fíkniefnaneyslu en áður var. Þórarinn segir þetta mjög jákvæða þróun. Þá hefur lyfjameðferð við lifrabólgu C gengið vonum framar.
Og að endingu er það bygging SÁÁ á Kjalarnesi, við meðferðarheimilið Vík.
Þórarinn segir að með byggingunni verði til einstakur aðbúnaður við starfsemina, aðeins sautján kílómetrum frá Reykjavík.
Nú styttist í að meðferðarheimilinu að Staðarfelli verði lokað. Húsið stenst ekki lengur kröfur og því er ekki annað að gera en loka.
Fleiri konur 55 ára og eldri lenda nú í vanda vegna ofneyslu lyfja og áfengis. Þórarinn rekur þetta vel í viðtalinu.
Viðtalið við Þórarinn verður á dagskrá klukkan 21:15 í kvöld.