Þrír ráðherrar eiga fé í skattaskjólum

17. mars sl. birti Hringbraut frétt vegna ummæla sem féllu í fyrirspurnatíma á Alþingi. Fréttin var stutt og eftirfarandi:

\"Fjármálaráðherra Bjarni Benediktsson segist ekki geta fullyrt neitt um hvort fleiri ráðherrar en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson eigi eignir á Tortóla. Þetta kom fram í fyrirspurnatíma á Alþingi í morgun.

Ásta Guðrún Helgadóttir, Pírötum, vildi vita hvort fleiri ráðherrar kynnu að eiga eigur á Tortóla  í ljósi upplýsinga af stóreign forsætisráðherrahjónanna sem fyrst bárust upplýsingar um í fyrrakvöld. Fréttir af félaginu á Tortóla kæmu á óheppilegum tima. Nú stæði yfir vinna að klára mál sem vörðuðu slit föllnu bankanna. Hún vildi vita hvort Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefði setið beggja megin samningaborðsins vegna kröfu í bankana og hins vegar sem forsætisráðherra. Þingmaðurinn vildi sérstaklega vita hvort fleiri aðilar hefðu mögulegra sérhagsmuna að gæta og spurði sérstaklega um aðra ráðherra.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra svaraði að  hann ætti erfitt með að svara spurningunni, hann hefði ekki upplýsingar til að bregðast við. Hann gæti ekki fullyrt neitt um stöðu einstakra ráðherra, hvort þeir ættu eignir á Tortóla, en taldi að eignir ráðherra í útöndum þyrftu ekki að kalla á hagsmunaárekstur gagnvart þrotabúum íslensku bankanna.\"

Í dag birti Rúv frétt þar sem segir af því að þrír ráðherrar í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar eigi fé í erlendum skattaskjólum.

Upplýst verður í Kastljósi á næstu dögum hvaða ráðherrar eiga í hlut en Jóhannes Kr. Kristjánsson, sjálfstætt starfandi rannsóknarblaðamaður hjá Reykjavík Media hóf rannsóknina með Alþjóðasamtökum rannsóknarblaðamanna og þýska blaðinu Süddeutsche Zeitung.

Allt um málið í frétt Ríkisútvarpsins hér.