Fulltrúar þriggja stærstu lífeyrissjóða landsins, LSR, Gildis og Lífeyrissjóðs verslunarmanna funduðu í gærmorgun með slitastjórn Kaupþings þar sem þeir lýstu yfir áhuga á að hefja viðræður um kaup á Arion banka.
Þetta kemur fram í forsíðufrétt Fréttablaðsins í morgun, en þar segir að samkvæmt stöðugleikaskilyrðum sem Kaupþing hefur undirgengist skuli stefnt að því að selja 87 prósenta hlut Kaupþings í Arion banka fyrir árslok 2016, svo lengi sem viðunandi verð fáist. Bókfært virði hlutar Kaupþings í Arion banka nemur 152 milljörðum króna.
Samkvæmt heimildum Hringbrautar er líklegt að fleiri lífeyrissjóðir komi að kaupunum, ef af verður, en fyrrgreindir þrír sjóðir munu hafa forgöngu um kaupin.
Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gildis lífeyrissjóðs segir í frétt blaðsins að þeim hafi verið vel tekið og slitastjórnin hafi haft áhuga á að halda viðræðunum áfram. Hann býst við því að fundað verði á ný í næstu viku. Ekki sé farið að ræða neinar verðhugmyndir.
Lífeyrissjóðirnir stefna að því að í kjölfar kaupanna, ef af verður, verði Arion banki skráður á markað: \"Hugsunin á bak við þetta er að það verði bara lífeyrissjóðir í fyrstu atrennu en almenningur og þá aðrir fjárfestar í framhaldinu. En þetta á allt eftir að móta frekar þegar við áttum okkur á því hvort við fáum þær undirtektir sem við þurfum,“ segir Árni í Fréttablaðinu í morgun.