Þrír látnir í skotárás í malmö

Þriðji ungi maður­inn er lát­inn eft­ir skotárás í miðborg Mal­mö í gær­kvöldi. Þetta kom fram á blaðamanna­fundi lög­regl­unn­ar í morg­un. Þrír eru særðir eft­ir árás­ina og er einn þeirra al­var­lega særður, að því er fram kemur á vef mbl.is. All­ir sem tengj­ast mál­inu hafa áður kom­ist í kast við lög­in og tengj­ast skipu­lagðri glæp­a­starf­semi.

Talsmaður lög­regl­unn­ar, Stef­an Sintéus, sagði á blaðamann­fund­in­um að það væri alltaf sorg­legt þegar ungt fólk lét­ist. Alls voru sex flutt­ir á sjúkra­hús eft­ir að skotið var á menn­ina þegar þeir yf­ir­gáfu net­kaffi­hús um klukk­an 20 að staðar­tíma í gær­kvöldi. Að sögn Sintéus skapaðist mik­il ringul­reið á vett­vangi enda ekki vitað hvort um hryðju­verk væri að ræða. Hann biður þá sem veitt geta upp­lýs­ing­ar um árás­ina að hafa sam­band, hvort sem um mynd­ir eða aðrar upp­lýs­ing­ar er að ræða.

Lög­regl­an vildi ekki staðfesta frá­sagn­ir vitna í fjöl­miðlum um að sjálf­virk­um vopn­um hafi verið beitt í árás­inni og seg­ir Niklas Kirchhoff sem stýr­ir rann­sókn­inni að tækni­rann­sókn muni leiða í ljós hvernig vopn­um var beitt, segir í frétt mbl.is.