Þrír látnir eftir flugslys í fljótshlíð

Þrír eru látnir og tveir voru fluttir alvarlega slasaðir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi eftir að flugvél skall til jarðar við Múlakot í Fljótshlíð á ní­unda tím­an­um í gær­kvöld.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi kemur fram að líðan þeirra slösuðu er stöðug.

Til­kynnt var um flug­slys ná­lægt flug­vell­in­um við Múla­kot í Fljóts­hlíð um 20.30 í gær­kvöld.  Eldur var þá laus í flugvélinni. Fjölmennt lið lögreglu, slökkviliðs og sjúkraflutninga HSU, ásamt tveimur þyrlum Landhelgisgæslunnar fóru á staðinn.

Rannsóknardeild Lögreglustjórans á Suðurlandi fer með rannsókn málsins og nýtur aðstoðar Rannsóknarnefndar samgönguslysa og tæknideildar Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu.

Viðbragðsteymi Rauða kross­ins  var sent á vettvang til að veita vitnum sálrænan stuðning.