Íslenskur karlmaður á þrítugsaldri lést í dag á Landspítalanum af áverkum sem hann hlaut í líkamsárás fyrir utan heimili sitt í gær. Málið er rannsakað sem manndráp. Þrír voru handteknir vegna málsins í dag.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Ráðist var á manninn í gærmorgun fyrir utan heimili hans í Kórahverfinu í Kópavogi. „Tilkynning um málið barst lögreglu kl. 8.51 að morgni föstudagsins langa, en málsatvik voru í fyrstu mjög óljós," segir í tilkynningu lögreglunnar.
Þrír erlendir ríkisborgarar voru handteknir vegna málsins í dag en rannsóknin er enn á frumstigi og segist lögregla því ekki geta veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.
Ákvörðun um hvort krafist verður gæsluvarðhalds yfir þremenningunum liggur ekki fyrir.