Þrír í framboði til rektors hí

Þau sögulegu tíðindi gætu gerst í dag að kona taki við af konu sem rektor Háskóla Íslands, en kjör nýs yfirmanns æðstu menntastofnunar Íslands fer fram í dag. Þrír háskólamenn hafa lýst yfir áhuga á að taka við keflinu af Kristínu Ingólfsdóttur sem gegnt hefur rektorsembættinu síðastliðinn áratug, en hún tók við af Páli Skúlasyni vorið 2005. Frambjóðendurnir þrír sem etja kappi um embættið í dag eru þau Einar Steingrímsson, Guðrún Nordal og Jón Atli Benediktsson, en samkvæmt heimildum Hringbrautar vestan af melum þykir líklegast að Guðrún hreppi hnossið, enda er hún talin njóta mikils og breiðs stuðning úr röðum kennara og nemenda skólans. Það kann þó að skekkja reikninginn að nýr rektor verður að njóta meira en helmings stuðnings í kjöri og verður að kjósa á milli tveggja efstu í kjörinu í dag fari svo að hvorugur þeirra nái hreinum meirihluta.


Kjörfundur stendur yfir frá klukkan 09.00 árdegis til 18.00 síðdegis og tekur nýr rektor við völdum 1. júlí 2015.