Ný stjórn Landsvirkjunnar var skipuð í gær. Jónas Þór Guðmundsson sem var endurkjörinn formaður, Álfheiður Ingadóttir, Jón Björn Hákonarson, Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir og Gunnar Tryggvason sitja nú í stjórninni.
Úr stjórn fóru Haraldur Flosi Tryggvason, Kristín Vala Ragnarsdóttir og Ragnheiður Elín Árnadóttir en þau hafa setið í stjórn fyrirtækisins frá því í fyrra.
Varamenn í stjórn eru: Jens Garðar Helgason, Ragnar Óskarsson, Ásta Pálmadóttir, Hákon Hákonarson og Arna Ír Gunnarsdóttir.
Fjármála- og efnahagsráðherra skipar stjórn fyrirtækisins samkvæmt lögum.
Á aðalfundinum var samþykkt tillaga stjórnar um arðgreiðslu til eigenda að fjárhæð 1,5 milljarðar króna fyrir síðasta ári, 2017.