Háskólinn með sjö rannsóknasetur

Atvinnulífið á Hringbraut í gærkvöld heimsótti einn stærsta og merkilegasta vinnustað landsins og kynntist því fjölþætta starfi sem þar er innt af hendi í þágu lýðs og lands.

Í þættinum tók Sigurður K. Kolbeinsson hús á Jóni Atla Benediktssyni, háskólarektor sem leiddi áhorfendur um helstu kima háskólasamfélagsins þar sem 14 þúsund stúdentar stunda nám í 25 deildum og um 1100 þeirra koma erlendis frá. Í þættinum, sem hægt er að nálgast hér á hringbraut.is,  kemur fram að Háskólinn er með mjög góða útkomu í alþjóðlegum samanburði, en þrír prófessora hans eru á lista yfir áhrifamestu vísindamenn í heiminum.

Háskóli Íslands var stofnaður árið 1911 og hefur því starfað í yfir 100 ár. Við skólann eru fimm fræðasvið og 25 deildir ásamt námsleiðum í þverfaglegu framhaldsnámi og sjö rannsóknasetrum á landsbyggðinni. Háskóli Íslands hefur brautskráð yfir 40 þúsund nemendur og býður upp á fjölbreytt nám á háskólastigi. Háskóli Íslands er eini háskóli landsins sem býður bæði grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum.

Háskóli Íslands er jafnframt alþjóðlegur rannsóknaháskóli sem hefur jafnframt ríkum skyldum að gegna við íslenskt samfélag, menningu og tungu. Rannsóknavirkni starfsmanna hefur vaxið hratt á undanförnum árum og sýna alþjóðlegir mælikvarðar að áhrif rannsókna þeirra hafa aukist verulega. Þá er skólinn í nánu samstarfi við marga af helstu rannsóknaháskólum og háskóladeildum heims auk þess að vera í samstarfi við öflugar íslenskar vísindastofnanir og fyrirtæki.

Markmið Háskóla Íslands er ætíð að sækja fram á við á sviði rannsókna, kennslu, stjórnunar og stoðþjónustu ásamt því að efla gæði og styrkja innviði allra þátta háskólastarfsins. Drifkrafturinn felst ekki hvað síst í að skapa nýja þekkingu og verðmæti byggð á rannsóknum og vísindum. Háskólar eru ómissandi hlekkur í þekkingar- og verðmætasköpun nútímasamfélaga og munu lífskjör í framtíðinni byggjast á þekkingu, vísindastarfsemi, nýsköpun og frumkvöðlahugsun.

 Atvinnulífið er frumsýnt öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00.