Þrír fangar á leið heim frá n-kóreu

Þrír bandarískir ríkisborgarar sem voru í haldi í Norður Kóreu eru á heimleið með Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem kom að undirbúa væntanlegan fund Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og Kims Jong Un, leiðtoga N-Kóreu.

Pompeo tók á móti föngunum þegar þeim var sleppt og þeir virtust við góða heilsu. Trump fagnaði tíðindunum í dag og sagði þau merki um velvilja Norður-Kóreu.

Trump tekur sjálfur á móti þeim þegar þeir lenda á Andrews-herstöðinni í Maryland í nótt. Hann sagði í dag að fundarstaður og dagsetning leiðtogafundarins yrðu ákveðin á næstu þremur dögum en útilokaði að fundurinn yrði haldinn á hlutlausa svæðinu milli Kóreuríkjanna.