Þrír drengir játa brunann í breiðholti

Gífurlegt tjón varð í Seljaskóla þegar eldur kom upp þann 12. maí síðastliðinn. Bæði vegna elds- og vatns­skemmda. Þá varð mikil röskun á skólastarfi. Lögregla hefur nú sent frá sér tilkynningu vegna málsins. Þar segir:

„Rannsókn á bruna í Seljaskóla aðfaranótt sunnudagsins 12 maí sl. er langt komin og þrír piltar hafa játað aðild að íkveikju sem leiddi til eldsvoða í þaki skólans. Piltarnir eru undir sjálfræðisaldri og einn þeirra undir sakhæfisaldri.

Málið hefur verið unnið í samráði við félagsyfirvöld og heldur rannsókn málsins áfram. Ekki er hægt að gefa frekari upplýsingar á þessu stigi.“