Þrír alhliða bankar ekki náttúrulögmál

Sigurður Atli Jónsson, stjórnarformaður ILTA Investments og fyrrverandi forstjóri Kviku banka, segir að með því að stefna að aukinni sérhæfingu mætti auka verðmæti bankanna.

„Íslensku bankarnir í dag eru allir að gera allt á þessum litla markaði. Það eru takmörk fyrir því hversu hátt verð er greitt fyrir hlutabréf í slíkum fyrirtækjum. Mér finnst stundum að menn falli í þá gryfju að fjöldi banka hér þurfi að vera þrír, og þeir þurfi að vera í sömu mynd og þeir eru nú. Ein leið sem stjórnvöld gætu hugleitt væri að að minnsta kosti annar bankinn í eigu ríkisins einbeiti sér fyrst og fremst að því að veita grunnfjármálaþjónustu.“

Nánar á

http://www.vb.is/frettir/thrir-alhlida-bankar-ekki-natturulogmal/152287/