Þriðji hver íslendingur stefnir í verkfall

Óveðursskýin hrannast upp á vettvangi íslensks atvinnulífs en mjög þunglega horfir í kjaraviðræðum flestra ef ekki allra stéttarfélaga sem nú reyna að ná samningum við atvinnurekendur, hvort heldur er við ríkið eða á almennum vinnumumarkaði.


Ef horft er til Starfsgreinasambandsins og BHM, sem þegar hafa byrjað aðgerðir, Flóabandalagsins og VR sem boðað hafa verkföll og BSRB sem er með lausa samninga má áætla að alls um 100 þúsund Íslendingar séu ýmist byrjaðir í verkfallsaðgerðum eða búi sig undir vinnustöðvun. Það jafngildir meiri átökum á íslenskum vinnumarkaði en þekkst hefur um áratugaskeið.


Magnús Pétursson ríkissáttasemjari, sem senn lætur af störfum eftir 7 ára farsælt starf í Karphúsinu hefur látið hafa eftir sér í fjölmiðlum að grafalvarleg staða sé komin upp í kjaramálum landsmanna, en honum óar mjög við því að þriðji hver Íslendingur leggi niður vinnu á næstu vikum fari allt á versta veg í samskiptum stéttarfélaga og  vinnuveitenda.