Þrír eru látnir eftir alvarlegt umferðarslys í morgun, þegar bíll fór fram af brúnni yfir Núpsvötn á Skeiðarársandi. Barn er á meðal þeirra látnu. Sjö breskir ferðamenn voru í bílnum og þeir fjórir sem lifðu slysið af voru allir með meðvitund þegar viðbragðsaðilar mættu til aðstoðar, þó þrír þeirra séu alvarlega slasaðir. RÚV.is greinir frá.
Í samtali við RÚV segir Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli, að svo virðist sem ökumaður hafi misst stjórn á bílnum, sem hafi farið í gegnum vegriðið á brúnni við Núpsvötn. Bíllinn hafi ekki farið í ána heldur lent á þurru á áraurunum. Sveinn bætir við að þó sé ómögulegt að segja með vissu hver orsök slyssins sé að svo stöddu en að það komi betur í ljós þegar rannsókn á vettvangi væri lengra á veg komin. Hiti sé í kringum núll stig á svæðinu og því gæti hálka hafa myndast á brúnni.