Björgunarsveitir á vestan- og norðanverðu fundu í morgun hestamennina þrjá sem leitað hafði verið að því því í nótt á Grímstunguheiði, norðan við Langjökul sem voru þar villtir í niðaþoku. Með þeim í för voru fimmtíu hestar.
Ekkert amaði að mönnunum.
Fjórði hestamaðurinn í hópnum komst í skála á Auðkúluheiði seint í nótt - en félagar mannsins virtist hafa villst af leið. Björgunarsveitir voru kallaðar út á miðnætti og var ástandið metið svo að ekki væri hætta á ferðum. Því var þyrla Landhelgisgæslunnar ekki kölluð út.
Grímstunguheiði er upp af Vatnsdal, vestan við Kjalveg, og þar gerir oft mikla þoku.