Francoise Hollande Frakklandsforseti hefur ávarpað frönsku þjóðina eftir fund með varnamálanefnd Frakklands. Hann lýsir yfir 3ja daga þjóðarsorg.
Í ræðu Frakklandsforseta kom fram að hann teldi að ISIS væri á bak við voðaverkin í nótt þar sem tala látinna er nú komin upp í 130. Hollande segir að árásirnar hafi verið skipulagðar og samhæfðar utan Frakklands með hjálp manna innanlands.
„Frakkland er sært en mun rísa upp aftur,“ sagði Hollande.
Hann heitir miskunnarlausu stríði gegn hryðjuverkum en morðin í nótt eru ein þau mannskæðustu í Evrópu.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur sent Frökkum samúðarkveðjur fyrir hönd Íslendinga.