Þriðjungur vill mosku múslima

Þriðjungur landsmanna er fylgjandi því að múslimar fái að reisa sér trúarbyggingu hér á landi á sama tíma og yfir 60% eru því fylgjandi að Þjóðkirkjan fái að reisa sér sambærileg hús.

Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR, en þar kemur jafnframt fram að innan við 10% framsóknarmanna hugnast að hér á landi rísi trúarhús múslima.

Af þeim sem tóku afstöðu sögðust flestir, eða 61,7%, vera fylgjandi því að Þjóðkirkjan fengi að byggja trúarbyggingar á Íslandi. Þetta er breyting frá árinu 2013 þegar 67,2% sögðust fylgjandi því að Þjóðkirkjan fengi að byggja trúarbyggingar í landinu. Önnur trúfélög nutu minni stuðnings. Þannig sögðust 50,5% vera fylgjandi því að Ásatrúarfélagið fengi að byggja trúarbyggingar á Íslandi, 39,4% voru fylgjandi því að Búddistafélagið fengi að byggja trúarbygginar, 33,4% voru fylgjandi því að Rússneska Rétttrúnaðarkirkjan fengi að byggja trúarbyggingar og 32,0% voru fylgjandi því að Félag múslima á Íslandi fengi að byggja trúarbyggingar á Íslandi.

Fæstir voru andvígir því að Þjóðkirkjan fengi að byggja trúarbyggingar á Íslandi (9,4%) og flestir sögðust vera andvígir því að Félag múslima fengi að byggja trúarbyggingar á Íslandi (37,6%). Hvað önnur trúfélög varðar voru 11,9% andvíg þvi að Ásatrúarfélagið fengi að byggja trúarbyggingar á Íslandi, 21,0% Búddistafélagið og 27% Rússneska réttrúnaðarkirkjan.

Hlutfall þeirra sem voru fylgjandi því að Þjóðkirkjan fengi að byggja trúarbyggingar var hærra á meðal þeirra sem eldri eru en á meðal þeirra sem yngri eru. Af þeim sem tóku afstöðu og tilheyrðu elsta aldurshópnum (68 ára og eldri) sögðust 82,3% vera fylgjandi því að Þjóðkirkjan fengi að byggja trúarbyggingar á Íslandi, borið saman við 45,4% þeirra sem tilheyrðu yngsta aldurshópnum (18-29 ára).
Aftur á móti var hlutfall þeirra sem voru fylgjandi því að Félag múslima á Íslandi fengi að byggja trúarbyggingar á Íslandi hærra á meðal þeirra sem yngri eru en á meðal þeirra sem eldri eru. Af þeim sem tóku afstöðu og tilheyrðu yngsta aldurshópnum sögðust 33,8% vera fylgjandi því að Félag múslima á Íslandi fengi að byggja trúarbyggingar á Íslandi, borið saman við 25,2% í elsta aldurshópnum (68 ára og eldri).

Þegar afstaða til þess að mismunandi trúfélög fái að byggja trúarbyggingar á Íslandi var skoðuð eftir stuðningi við stjórnmálaflokka komu í ljós skiptar skoðanir. Niðurstöður bentu til þess að þeir sem studdu Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkinn gerðu frekar greinarmun á Þjóðkirkjunni og öðrum trúfélögum en þeir sem studdu aðra flokka. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Framsóknarflokkinn sögðust 64,9% vera fylgjandi því að Þjóðkirkjan fengi að byggja trúarbyggingar á Íslandi en 9,4% voru fylgjandi því að Félag múslima á Íslandi fengi að byggja trúarbygginar á Íslandi. Meðal Sjálfstæðismanna sögðust 70,2% vera fylgjandi því að Þjóðkirkjan fengi að reisa trúarbyggingar á Íslandi og 22,3% voru fylgjandi því Félag múslima á Íslandi fengi að byggja trúarbyggingar.
Til samanburðar sögðust 51,8% þeirra sem studdu Pírata vera fylgjandi því að Þjóðkirkjan fengi að byggja trúarbyggingar á Íslandi og 39,2% voru fylgjandi því að Félag múslima á Íslandi fengi að byggja trúarbyggingar.