Þriðjungur trúir á óhefðbundnar

Ef marka má óformlega skoðanakönnun sem verið hefur á forsíðu hringbrautar.is á síðustu dögum hefur þriðjungur landsmanna trú á óhefðbundnum lækningum en mikill meirihluta þeirra, eða nær 70 prósent hefur vantrú á þeim. Umræðan um óhefðbundnar lækningar hefur verið áberandi hér á landi síðustu daga eftir að Kastljós Ríkissjónvarpsins beindi glóru sinni að sölumönnum meintra heilsubótarefna sem verið var að selja fárveiku fólki. Í allri þeirri umræðu sem spratt upp í kjölfarið gætti á stundum alhæfinga þar sem allar læknisaðferðir utan hinna svonefndu hefðbundnu nútímalækninga voru settar undir sama hatt, þar með taldar vafasamar skottulækningar.
Náttúrulækningar verða annars til umfjöllunar í heilsu- og útilífsþættinum Lífsstíl sem er á dagskrá á sjónvarpsstöðinni Hringbraut á mánudagskvöld, en þar verður fulltrúi Náttúrulækningafélags Íslands gestur Sigmundar Ernis í fjölbreyttum þætti um hreyfingu, mataræði og mannrækt.