Allt stefnir í að 1.600 starfsmenn Landspítalans leggi niður störf aðfaranótt fimmtudags, en þá hefst vinnustöðvun SFR, stéttarfélags í almannaþjónustu, og Sjúkraliðafélags Íslands (SLFÍ).
Um er að ræða tæplega þriðjung starfsmanna spítalans, en hópurinn sem stefnir í verkfall að þessu sinni er ívið fjölmennari en stétt hjúkrunarfræðinga á spítalanum: \"Við erum farin að undirbúa okkur eins vel og við getum fyrir þær aðstæður sem koma upp ef kemur til verkfalls. Við erum því miður orðin vön því að reka spítalann í verkföllum,“ segir Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítalanum í samtali við Morgunblaðið í dag og bætir við: \"Við vonum enn að menn nái saman svo það verði hægt að afstýra verkfalli.“
Sigríður segir að á verkfallstímum á spítalanum á undanförnum árum hefði verið kappkostað að standa vörð um bráðastarfsemina. Það yrði áfram gert. Hún bendir á að nú stefndi í að fjöldi starfsmanna á ólíkum sviðum spítalans legði niður störf. Viðbrögðin tækju mið af því við hvað þetta fólk starfaði. Hún segir alveg ljóst að verkfallsaðgerðir SFR og SLFÍ muni koma verulega niður á starfsemi spítalans: \"Það er ljóst að við getum ekki gegnt okkar hlutverki til fulls ef aðeins hluti starfsfólksins er í vinnu,“ segir Sigríður við blaðið.
Hún segir ennfremur að einhver störf væru á undanþágulistum. Sigríður bendir á að á spítalanum, líkt og almennt í heilbrigðisþjónustu, starfi teymi við umönnun sjúklinga. Störf ýmissa fagstétta geti mögulega skarast á stundum. Almenna reglan sé þó sú að ekki sé gengið í störf annarra fagstétta: \"Það er stundum hægt að láta hlutina ganga með öðrum í teyminu, en það verða ekki stunduð verkfallsbrot. Það er alveg víst. Ef ekki eru undanþágur verður að bregðast við því með því að draga starfsemina saman,“ segir Sigríður í Morgunblaðinu í dag.