Þriðjungur kaus ekki ólöfu til forystu

 Þriðji hver þátttakandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík kaus ekki Ólöfu Nordal, varaformann flokksins, í fyrsta sæti. Ólöf ein sóttist eftir fyrsta sæti í prófkjörinu. 3.329 kusu og þar af kusu 2.090 Ólöfu í fyrsta sæti, eða 63 prósent.

Guðlaugur Þór Þórðarson fékk 69 prósent atkvæða í annað sætið, Brynjar Níelsson fékk 43 prósent í þriðja sæti, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fékk 42 prósent í fjórða sæti, Sigríður Á. Andersen fékk 47 prósent í fimmta sæti og Birgir Ármannsson fékk 56 prósent í sjötta sæti.