Þriðjungur háskólanema þunglyndur

Liðlega þriðjungur háskólanema hér á landi mælist með þunglyndi, að því er niðurstöður rannsóknar á geðheilsu nemenda við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Akureyri sýna.
 

\"Það markverðasta sem kom fram hjá okkur er að stór hluti af háskólanemum er að glíma við andleg veikindi, sérstaklega kvíða- og þunglyndisvanda. Um 34 prósent nemenda mældust yfir klínískum mörkum þunglyndis og um 19 prósent yfir klínískum mörkum kvíða,“ sagði Andri Hauksteinn Oddsson, sálfræðingur í Morgunútvarpinu á Ras 2 í morgun, en þar var rætt við hann ásamt Halldóru Björgu Rafnsdóttur, sálfræðing.

Einkennin sem mældust voru frá því að vera miðlungs alvarleg í að vera alvarleg. Andri bendir á að því sé bilið nokkuð breitt en engu að síður hafi svo hátt hlutfall mælst yfir þeim klínísku mörkum sem voru notuð við rannsóknina: \"Þannig að þetta er svolítið sláandi og eitthvað sem þarf að skoða betur í framhaldinu,“ sagði Andri Hauksteinn í viðtalinu í morgun.