Uppsagnir 18 geislafræðinga á Landspítalanum tóku gildi á miðnætti og þar af leiðandi vantar nú þriðjung geislafræðinga til starfa á þjóðarsjúkrahúsinu. Ljóst er að það hægir mjög á þjónustu spítalans fyrir vikið.
\"Þetta er verra ástand en var í verkfallinu,“ sagði Katrín Sigurðardóttir, formaður félags geislafræðinga í gær um aðstæður á Landsspítalanum vegna þessara uppsagna, en Páll Matthíasson forstjóri spítalans vildi á sama tíma ekki taka svo djúpt í árinni, spíalinn réði við verkefni sín þótt eflaust myndu biðlistar ekki grynnka.
Katrín minnti á að í verkfallinu hafi verið hægt að kalla fólk inn á undanþágu og það hafi verið gert í miklum mæli, en fólk sem sé hætt störfum verði vitaskuld ekki kallað til starfa.
Katrín sagði ástandið vera sorglegt: \"Það var nú bara hringt hingað frá Noregi og við beðin um að benda þeim á fólkið en það sem er sorglegt er að fólk er jafnvel að fara úr geiranum. Það er agalegt því við höfum ekki það mikið af geislafræðingum og þetta er algjör sóun.“