Aðeins þriðjungur fengið fræðslu um kynferðislega áreitni og einelti – „hefði haldið að þessu væri tekið mun alvarlegar“

Um 35 prósent fólks á vinnumarkaði hefur fengið fræðslu um kynferðislega áreitni og einelti á vinnustöðum sínum. Þetta kemur fram í könnun sem Zenter rannsóknir framkvæmdi fyrir Fréttablaðið.

Katrín Björg Ríkarðsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, segir í samtali við Fréttablaðið að niðurstöðurnar séu vonbrigði og komi á óvart. „Ég velti fyrir mér hvort vinnuveitendur geri sér grein fyrir ábyrgð sinni í þessum málum. Það er skýrt fjallað um þetta í lögum og reglugerð, ég hefði haldið að þessu væri tekið mun alvarlegar. Sérstaklega í ljósi #MeToo sem ýtti heldur betur undir umræðuna,“ segir hún.

Í jafnréttislögum er gert ráð fyrir sérstakri jafnréttisáætlun í fyrir­tækjum sem eru með fleiri en 25 starfsmenn og er það skylda vinnuveitenda að gera sérstakar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að starfsfólk, nemar eða skjólstæðingar séu beittir ofbeldi eða áreittir. Því sé fræðsla nauðsynleg að sögn Katrínar. Jafnréttisstofa getur beitt dagsektum, allt að 50 þúsund krónum á dag, sinni fyrirtæki ekki þeirri skyldu sinni að útbúa jafnréttisáætlanir.

Niðurstöður könnunarinnar eru á þá leið að mun fleiri konur, 42 prósent, hafa fengið fræðslu um kynferðislega áreitni og einelti. Til samanburðar höfðu karlar fengið fræðslu í 29 prósentum tilvika.

Á höfuðborgarsvæðinu hafa talsvert fleiri fengið fræðslu á þessu sviði samanborið við landsbyggðina. Fólk á aldursbilinu 35 til 44 ára er líklegast til að hafa fengið þessa fræðslu og fólk á aldrinum 18 til 24 ára er ólíklegast.

Samkvæmt niðurstöðunum telur það fólk sem hefur fengið fræðslu um þessi mál á sínum vinnustað að þörf sé á aukinni fræðslu. Þau sem ekki hafa fengið fræðslu telja minni þörf á því.

Könnunin var framkvæmd frá 23. til 30 apríl. Úrtak 1.500 einstaklinga á vinnumarkaði fékk könnunina sem framkvæmd var á netinu. Svarhlutfall var 58 prósent.