Þriðji þáttur af Skrefinu lengra verður sýndur á sunnudagskvöld. Hér eru á ferðinni einkar skemmtilegir og fræðandi þættir þar sem Snædís Snorradóttir dagskrárgerðarkona mun kynna fyrir áhorfendum námsleiðir og námskeið sem hægt er að sækja.
Í þriðja þætti heimsækir Snædís Söluskóla Gunnars Andra. Þar ræðir hún um leiðina hans að stofnun skólans.
Hún fer einnig í Iðuna fræðslusetur, sem býður upp á gífurlegan fjölda námskeiða í iðngreinum.
Þá heimsækir hún Handverkshúsið og skoðar fjölbreytt hannyrðanámsekið hjá Muggi.
Stikla fyrir þáttaröðina:
Skrefinu lengra er á dagskrá Hringbrautar öll sunnudagskvöld klukkan 21:00.
Hægt er að nálgast fyrstu tvo þættina undir Sjónvarp – Skrefinu lengra.