Innleiðing þriðja orkupakkans virðist ætla að reynast ríkisstjórnarflokkunum erfitt mál. Karl Garðarsson og Jón Kaldal, hinir þaulreyndu fjölmiðlamenn, voru gestir Sigmundar Ernis í ritstjórunum í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í gærkvöld, þar sem þeir ræddu málið í þaula.
„Þetta er mjög erfitt mál fyrir Framsóknarflokkinn, ekki síst vegna þess að hann er að berjast við Miðflokkinn um fylgi. Miðflokkurinn hefur mjög skýra stefnu í þessu máli, og þá er mjög erfitt fyrir Framsóknarflokkinn, gagnvart sinni grasrót, að vera svona beggja blands í málinu, þora ekki að taka skrefið til fulls og vera á móti þessu eins og er í rauninni stefna flokksins, það sem að flokksstofnanir innan flokksins hafa viljað. Þetta er mjög erfitt líka fyrir ráðherra flokksins út af því. Við sjáum það í nýjustu könnunum að Framsóknarflokkurinn, Miðflokkurinn er alveg búinn að ná honum í skoðanakönnunum eftir Klaustursmálið,“ segir Karl.
Hann segir málið hitta Framsóknarflokkinn mjög illa þar sem flokksapparöt flokksins hafi verið mjög mótfallinn þriðja orkupakkanum. „Þannig að ef ráðherrar flokksins eru að styðja orkupakkann þá eru þeir að ganga gegn sínu eigin flokksfólki og þeim ákvörðunum sem hafa verið teknar í flokknum. Auðvitað er það erfitt, mjög erfitt í öllum flokkum, því að menn ætla að gera það til að halda stjórnarsamstarfi. Flokkurinn er klofinn, þannig séð, hvað þetta varðar líka. Þetta er ekkert einhugur innan Framsóknarflokksins um þetta mál frekar en í öðrum flokkum. Þetta er mál sem nær þvert yfir alla flokka. Síðan sjáum við aðra flokka eins og Pírata, sem nánast þegja. Samfylkingin er einhvern veginn til hliðar í málinu og þetta er bara mál sem er vandræðamál í öllum flokkum nánast.“
Jón grípur þetta á lofti og nefnir Vinstri græna. „Það er merkilegt, af því að við vorum að ræða ríkisstjórnarflokkanna, núna horfum við á Vinstri græna, þar eru í rauninni meintir villikettir, Rósa Björk [Brynjólfsdóttir] og Andrés Ingi [Jónsson], en þeir eru villikettir á hinum vængnum, alþjóðlegir villikettir. Þjóðernisíhaldið, Ögmundur [Jónasson] og Jón Bjarnason, þessir menn eru farnir, en þetta fólk mun ekki verða til vandræða. Þetta eru skemmtileg umskipti.“
Þriðji orkupakkinn minnki ekki vinsældir ríkisstjórnarinnar
Karl segir umræðu um innleiðingu þriðja orkupakkans ekki til þess fallna að minnka vinsældir ríkisstjórnarinnar. „Orkupakkamálið, ef við tökum það, á það ekki að hafa mikil áhrif þannig að þeir verða óvinsælir? Nei. Af hverju ekki? Vegna þess að staðreyndin er sú að stór hluti landsmanna hefur enga ákveðna skoðun á þessu máli. Þetta eru tvær fylkingar, sem eru mjög háværar, sem eru að deila í þessu máli.
Hann heldur áfram: „Eins og hefur komið fram í könnunum eru 50-60 prósent landsmanna sem hefur enga fastmótaða skoðun á þessu máli, vegna þess að það dynja á fólki alls konar upplýsingar úr báðum áttum og það er gríðarlega erfitt að festa hendur á hvað er rétt og hvað er rangt. Síðan eru kallaðir til sérfræðingar, það eru kallaðir til lögmenn sem koma fyrir þingnefndir og þeir eru meira að segja líka svona: „Ja, við vitum ekki alveg hvernig þetta verður, hvort þetta er afsal á fullveldi og svo framvegis. Við vitum ekki hvað gerist ef við samþykkjum þetta.“ Og ekki verður það til þess að einfalda ákvarðanatöku hjá almenningi.“
Umræðurnar í heild sinni er að finna hér: