Þriðji orkupakkinn tekinn af dagskrá um óákveðinn tíma

Umræðu um þriðja orkupakkann á Alþingi hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Ákvörðunin var tekin eftir að formenn þingflokkanna settust á fund í dag til að ræða framgang mála á þinginu. RÚV.is greinir frá.

Ákveðið var að forystumenn flokkanna á þingi hittust á fundi klukkan ellefu og reyndu að finna leiðir til að rjúfa þá pattstöðu sem væri komin upp á þingi vegna málþófs þingmanna Miðflokksins um þriðja orkupakkann, sem hafði staðið yfir í tvær vikur. Niðurstaða fundarins var að víkja frá röð mála á dagskrá. Þriðji orkupakkinn og mál sem honum tengjast voru því tekin af dagskrá.

Umræðan um þriðja orkupakkann er orðin sú næstlengsta á Alþingi síðan þing var sameinað í eina deild árið 1991. Umræðan hefur staðið yfir í 134 klukkustundir og átta mínútur og er þannig klukkustund  styttri en umræðan um Icesave og um 36 klukkustundum lengri en umræðan um EES-samninginn.

Í dag hófu því þingmenn umræðu um heilbrigðisstefnu til ársins 2030, þingsályktunartillögu Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra, tveimur vikum eftir að áætlað hafði verið að hefja þá umræðu.