Þriðja tölvubyltingin er í nánd

Upplýsingatæknifyrirtækið Advania heldur sína árlegu Haustráðstefnu á föstudag í Hörpu, en þar verður fjallað um þriðju tölvubyltinguna sem er innan seilingar að því er skipuleggjendur ráðstefnunnar fullyrða.

Ráðstefnan hefur aldrei verið stærri en í ár, en hún er svokölluð hugvitshátíð þar sem ráðstefnugestum er boðið að taka skref inn í nýjan heim: \"Sýndarveruleikatækni mun gera okkur kleift að sinna vinnunni í umhverfi að eigin vali, t.d. á ströndinni, uppi í bústað eða bara úti í skógi,\" segir í tilkynningu um rápstefnuna.

\"Þessi tækni mun einnig hafa veruleg áhrif á framleiðslu kvikmynda. Fjallað verður um þetta og margt fleira á sannkallaðri hugvitshátíð í Hörpu þann 9. september en þá heldur Advania sína árlegu Haustráðstefnu í 22. sinn. Tækniþróun hefur jafnframt mikil áhrif á möguleika okkar til samskipta, hvort sem um er að ræða á vinnustaðnum, í skólanum eða í einkalífinu. Þessar tækninýjungar hafa þó ekki bara skapað tækifæri heldur einnig ógnir. Vöxtur netglæpa er mikill og því verður sífellt mikilvægara að einstaklingar og fyrirtæki grípi til réttra aðgerða þegar kemur að öryggislausnum.\"

Fyrirlesarar í fremstu röð munu miðla framtíðarsýn sinni og þekkingu. Á ráðstefnunni verða erindi frá fyrirtækjum og stofnunum á borð Google, Facebook, Trend Micro, Dell, Microsoft, HP, Knowledge Factory, Völku, Háskólanum í Reykjavík, Þjóðskrá, LHR, Mint Solutions, Cisco, KPMG, Breakroom, Veracode, Controlant, Samsung, Solid clouds, RSA Security, RVX, og Secure Work.

Fyrirlestrar Haustráðstefnu Advania verða 31 talsins en aldrei áður hafa jafn margir fyrirlestrar verið í boði á ráðstefnunni.