Þriðja hver lögreglukona er áreitt

Fjórðungur kvenna innan lögreglunnar er lagður í einelti og þriðja hver lögreglukona á landinu hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustað að því er fram kemur í rannsókn Finnborgar Salome Steinþórsdóttur á vinnumenningu lögreglunnar.

Tölurnar eru allar sláandi sem þar koma fram, einkum hvað konurnar varðar, en einnig kemur fram að 17% karla hafa verið lögð í einelti á vinnustað og 4% þeirra hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni.

Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri kveðst í Fréttablaðinu í morgun hafa ráðist í fjölmargar aðgerðir gegn einelti og kynferðislegri áreitni í öllum embættum lögreglunnar á landinu, en hann segir að tillögum Finnborgar verði að fylgja eftir enda sé vandinn enn til staðar.

Vandinner talinn alvarlegur og til viðbótar við aðgerðir ríkislögreglustjóra ákvað innanríkisráðuneytið að fá vinnusálfræðing til að greina samskiptavanda í yfirstjórn lögreglunnar.

Þá hefur og verið komið upp fagráði innan lögreglunnar, ákveðið að endurútgefa jafnréttisáætlun lögreglunnar og endurskoða siðareglur hennar.