Síðastliðinn mánudag féll erlendur verkamaður niður af húsþaki við Víðimel 50–52 í vesturbæ Reykjavíkur, þar sem hann var við störf. Hann liggur nú stórslasaður á sjúkrahúsi og Vinnueftirlitið hefur bannað alla vinnu á verkstað þar til öryggi hefur verið tryggt. Frá þessu er greint á DV.is í dag.
Samkvæmt skýrslu Vinnueftirlitsins var fallhæðin 6,6 metrar og var maðurinn að störfum við þakviðgerðir. Hann rann af þakinu inn á vinnupall við þakbrún og féll þaðan fram af pallinum og niður á jörðina.
Maðurinn liggur nú þríbrotinn á hálsi á Landspítalanum en er ekki lamaður.
Öryggiskröfum ekki sinnt
Öryggiskröfum var ekki sinnt en nákvæmar reglur eru til um þakvinnu; reglugerð nr. 547/1996 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggisráðstafanir á byggingarvinnustöðum og við aðra tímabundna mannvirkjagerð.
Á Víðimel voru margir öryggisþættir í ólagi. Vinnupallarnir voru til að mynda ófullnægjandi, þar sem engir fótlistar voru á efstu hæð palls, sem getur valdið mikilli slysahættu. Starfsmenn notuðu auk þess ekki viðeigandi öryggishjálma sem atvinnurekanda er skylt að leggja til. Eiga starfsmenn í byggingavinnu samkvæmt reglum að nota hjálma af viðurkenndri gerð.
Útlit hluta fallvarnarbúnaðar var ófullnægjandi og aldur búnaðarins var kominn fram yfir viðmiðunarmörk. Þá hafði ekkert skriflegt áhættumat verið gert um öryggi og heilbrigði á vinnustaðnum.
Í samtali við DV segir Svava Jónsdóttir, sviðsstjóri hjá Vinnueftirlitinu, að verktakinn, Húsaviðgerðir.is, hafi þegar brugðist við hluta af athugasemdum eftirlitsins og hafi til dagsins í dag að bregðast við restinni af þeim. Hægt er að hefja vinnu á ný ef Vinnueftirlitið metur það sem svo að öll skilyrði séu uppfyllt.
Nágranni húseigenda, kona sem býr á Hringbraut, heyrði þegar maður féll en hún þekkir ágætlega til.
„Ég sá þetta ekki gerast en ég heyrði hávaðann. Fyrst hélt ég að þeir hefðu misst niður bárujárnsplötu eða eitthvað slíkt.“
Matthías Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Húsaviðgerða.is, vildi ekki tjá sig við DV um málið.