Dögun, stjórnmálasamtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði, hefur ákveðið að setja á fót netsjónvarp til að koma boðskap samtakanna á framfæri.
Fram kemur í yfirlýsingu að fjölmiðlar hunsi flestallar ályktanir og fréttatilkynningar frá Dögun ef vefmiðillinn mbl. is sé undanskilinn.
Illmögulegt hafi reynst að rjúfa þöggun fjölmiðla eins og komið hafi á daginn um síðustu helgi þegar Dögun hélt landsfund. Algjör þögn um fundinn með fyrrnefndi undantekningu.
Í ljósi þessa hafi Dögun ákveðið að stofna sérstaka fréttaveitu, netsjónvarp. Stefnt sé að útsendingum á fyrsta fjórðungi næsta árs.
Þá hvetur Dögun íslenska blaðamenn til að fara betur með lýðræðislegar skyldur en raun beri vitni.