Þreyta rússneskra flugmanna er talin helsta skýring þess að þeir tóku ranga ákvörðun með því að gefa röngum hreyfli inn í fráhvarfsflugi á Keflavíkurflugvelli og leiddi til þess að vélin lenti utan brautar. Einn úr áhöfninni slasaðist lítillega á fæti.
Þetta kemur fram í skýrslu sem Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur sett saman vegna slyssins. Það varð 21. júlí árið 2013. Sukhoi Civil Aircraft RRJ-95B lenti þá í miklum vanda sem hefði getað leitt til alvarlegri atburða. Vélin var við æfingar á vegum framleiðanda þar sem skoða átti áhrif þyngdar, hliðarvinds og sjálfvirknibúnaðar við nokkuð krefjandi aðstæður þar sem vélin flaug nokkrum metrum ofan flugbrautar. Hún fór niður vegna mistaka og endaði utan flugbrautar en nokkuð var um málið fjallað í fréttum á sínum tíma.
Skýrslan er á ensku og kom út fyrir nokkrum dögum. Hún er 56 bls. á lengd og má lesa í heild hér.