Umhverfis- og samgönguráð Reykjavíkurborrgar hefur nú til skoðunar hertar reglur um akstur hópferðabíla um fjölfarnar umferðargötur í miðborginni, en hættuástand af hans völdum er að verða daglegt brauð á svæðinu.
Gríðarleg aukning á hótel- og gistiplássi í miðborginni hefur haldist í hendur við stórfjölgun ferðafólks á síðustu árum, svo að segja allt árið um kring, en það hefur skapað nýjan vanda á vinsælustu gististöðunum í grennd við og í miðborg Reykjavíkur; fjöldi lítilla rúta og allt upp í stærstu hópferðabíla hafa reynt að smokra sér leið um þröngar götur miðborgarinnar, oft með þeim hætti að lagt hefur verið inn á bílastæðum íbúa, uppi á gangstéttum eða úti á götunum á meðan fólksflutningabílarnir hafa verið tæmdir eða fylltir aftur af fólki og farangri. Þessar aðfarir hafa valdið fjölmörgum ökumönnum og vegfarendum miklum vandræðum og aukið á slysahættu í umferðinni - og þá hafa verslunarmenn ítrekað kvartað yfir reykspúandi rútum framan við verslanir og kaffihús.
Tillagan sem nú er til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd gerir ráð fyrir að umferð fólksflutningabíla í öllum Þingholtunum, Skólavörðuholtinu og Kvosinni verði takmörkuð til muna en þess í stað verði komið upp sleppistæðum við Hlemm og á Lækjargötu. Það er mjög í anda þess sem þekkist í mörgum helstu ferðamannaborgum í Evrópu, svo sem Kaupmannahöfn og Amsterdam svo fáein dæmi séu tekin, en ekki er vitað um neina aðra höfuðborg í Evrópu sem leyfir nánast óhindraðan aðgang stærstu langferðabíla um miðborgina, nema Reykjavík.