Þrefalt meiri akstur í aðdraganda kosninga

Akstur þingmanna í aðdraganda kosninga er mun meiri en á öðrum tímabilum og endurgreiddur aksturskostnaður þingmanna því allt að þrefalt hærri. Þetta kemur fram í svari Steingríms J. Sigfússonar, forseta Alþingis, við fyrirspurn Björns Leví Gunnarssonar, þingmanns Pírata. Eyjan.DV.is greinir frá.

Endurgreiðsla aksturskostnaðar þingmanna Alþingis vöktu athygli fyrir um ári síðan, þegar í ljós kom að Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafi fengið endurgreiðslur upp á 4,2 milljónir króna árið 2017 og alls 23 milljónir króna frá árinu 2013.

Endurgreiðsla aksturskostnaðar er greidd út á þeim forsendum að þingmenn séu að sinna þingmannsstörfum. Frambjóðendur flokka sem ekki eru á þingi fá engar slíkar endurgreiðslur. Engar sérstakar reglur eru til um akstursgreiðslur þingmanna vegna kosningabaráttu, né eru þær tilgreindar í reglum um þingfararkostnað, samkvæmt forseta Alþingis.

Næstum þrefalt hærri kostnaður í aðdraganda kosninga

Samkvæmt þeim tölum sem eru gefnar upp í svari forseta Alþingis námu endurgreiðslur til þingmanna fyrri hluta ársins 2013 um 35 milljónum króna. Þá fóru kosningar fram í apríl. Ári seinna, á sama tímabili, námu endurgreiðslurnar 23,8 milljónum króna og árið 2015 var upphæðin 22,8 milljónir króna. Engar kosningar fóru fram árin 2014 og 2015.

Árið 2016 var kosið til Alþingis í lok október. Á fyrri hluta ársins námu endurgreiðslur 20,2 milljónum króna og á seinni hluta ársins námu endurgreiðslur 24,1 milljón króna.

Árið 2017 var kosið á seinni hluta ársins. Á fyrri hluta ársins námu endurgreiðslur 17,3 milljónum króna og á seinni hluta ársins námu þær 17,6 milljónum króna.

Árið 2018 námu endurgreiðslur aðeins 12,1 milljón króna á fyrri hluta árs og 11,5 milljónum króna á seinni hluta árs.

Endurgreiðslur vegna aksturskostnaðar til þingmanna hafa því lækkað umtalsvert á síðustu árum eftir að Björn Leví vakti athygli á málinu. Áhugavert er að bera saman fyrri hluta ársins 2013 og fyrri hluta ársins 2018, en þar munar 23 milljónum króna, sem jafngildir næstum þrefalt meiri akstri og þrefalt hærri kostnað í aðdraganda kosninga árið 2013.

Björn Leví er ósáttur við svar forseta Alþingis, og kallar eftir sundurliðun eftir kostnaði per mánuð, líkt og áður hefur tíðkast, í stað sundurliðun eftir fyrri hluta og seinni hluta árs. Hann segir vinnubrögðin fáránleg og að það þýði ekki að vera með feluleiki þegar hann óskar eftir upplýsingum.