Sjúkratryggingar Íslands greiddu í fyrra fyrir tólf lið- og augasteinsskiptaaðgerðir sem framkvæmdar voru á erlendri grundu. Fjöldi þeirra sem leitaði í slíkar aðgerðir, þrefaldaðist milli ára. Fólk sé að flýja biðlistana á Íslandi.
Þetta kemur fram á forsíðu Fréttablaðsins í dag, en þar segir að kostnaður hins opinbera veegna þessa nemi 18,4 milljónum króna. Tæplega 6,8 milljónir hefðu aftur á móti sparast heefðu aðgerðirnar verið gerðar hér á landi. Sjúkratryggingar greiða ekki aðeins fyrir aðgerðina úti, heldur einnig flugfarið og uppihaldið.
Guðjón Brjánsson, þingmaðurr Samfylkingarinnar og fyrrrverandi forstöðumaður Heilbrigðisstofnunar Vesturlands gagnrýnir þetta fjáraustur í blaðinu í dag og segir kerfið vera að molna undan landsmönnum; þetta séu aðgerðir sem auðveldlega sé hægtt að gera hér á landi.