Þrálát vetrarveður eru í spákortunum og ekkert lát virðist vera á þeim lægðagangi sem loðað hefur við landið síðustu daga og vikur, en útlit er fyrir að það haldi áfram að kyngja niður snjó mjög víða í byggð.
Það verður heldur hægari vindur sunnan-og vestanlands í dag en áfram verður þó suðvestlæg átt með ofankomu. Á Norðurausturlandi og Austurlandi stefnir víða \"í bjartan og fallegan dag,“ eins og það er orðað í hugleiðingum veðurfræðings. En þetta er lognið á undan storminum því strax annað kvöld dregur til tíðinda, en þá skellur á með austanstormi og snjókomu sunnanlands þar sem skyggni getur orðið ansi lélegt og skilyrði til ferðalaga víðsjárverð.
Á laugardaginn er útlit fyrir áframhaldandi austanstorm syðst á landinu og gengur einnig í hvassa norðanátt um landið norðanvert með ofankomu. Og veðurfræðingur varar við því að spár séu nokkuð óstöðugar fyrir framhaldið en líkur eru á þrálátu vetrarveðri um allt land og ástæða til að fylgjast með spám.