Þrætuepli stórveldanna

Bandarískir ráðherrar efast ekki um að ríkisstjórn Sýrlands ber ábyrgð á eiturgasárásinni á Sýrlandi. Rússneskir ráðherrra þar á móti spyrja hvort markmið Bandaríkjanna séu enn þau söum - að ráða niðurlögum hryðjuverkasamtaka sem kenna sig við íslamska ríkið.

Bandaríkjamenn svara Rússum og segja að Bandaríkin á Sýrlandi munu hér eftir sem hingað til leita pólitískra lausna og grípa til vopna þegar þurfa þykir ef notuð væru vopn sem eru bönnuð samkvæmt alþjóðalögum. 

Bandaríkin ítreka á fundum með nánustu bandamönnum að meginmarkmið Bandaríkjanna sé að gersigra samtökin sem kenna sig við íslamska ríkið.

Í Rússlandi kemur skýrt fram að stuðningur Rússa við Assad forseta sé óbreyttur. Talsmenn forseta Rússlands segja að tala Bandaríkjamanna um að eiturgasárásin sé á ábyrgð Assad forseta sé yfirvarp. Bandaríkin áformi frekari hernaðaraðgerðir á Sýrlandi gegn hér ríkisstjórnar Sýrlands.

Spenna vex í samskiptum Rússlands og Bandaríkjanna. Rex Tillerson fer án efa frá Moskvu sannfærður um að hann hafi fyllilega náð að afstöðu Bandarikjanna í málefnum sem varða Sýrland.