Sá skarpi og eiturbeitti þjóðmálarýnir, Jónas Kristjánsson, segir í nýjasta pistli sínum á jonas.is að aukin velmegun síðustu ára hafi eingöngu runnið til þeirra, sem betur mega.
\"Þrælarnir eru 45% þjóðarinnar,\" skrifar hann og útskýrir: \"Það eru þeir sem hafa innan við 500.000 krónur á mánuði að sköttum meðtöldum. Hann metur það svo að þriðji hver Íslendingur eigi minna en ekkert, hafi eignastöðu í mínus.
Og helmingur þjóðarinnar eigi minna en eina milljón í eignum: \"Það er fólkið, sem fer halloka, þrælarnir,\" segir Jónas og sendir því næst kjörnum fulltrúum sneiðina: \"Þegar pólitíkusar segja fólk hafa það gott, eru þeir bara að hugsa um hina. Ríkasta 1% þjóðarinnar á 25% allra eigna og auður þeirra hefur vaxið um 40% síðasta áratug. Þessar tölur segja okkur frá magnaðri aukningu á stéttskiptingu í samfélagi, sem þykist vera stéttlaust.\"