Hagfræðiprófessorinn Þorvaldur Gylfason segir að eign ríkisins í Íslandsbanka hafi verð seld á undirverði til að „hákarlar“, fjársterkir aðilar, geti keypt bankann. Í samtali við MBL segir Þorvaldur að þetta minni hann á þegar Búnaðarbankinn og Landsbankinn voru seldir nokkrum árum fyrir hrun.
„Salan á bréfum ríkisins í Íslandsbanka hefst með nákvæmlega sama hætti og einkavæðing Búnaðarbankans og Landsbankans 1998,“ segir Þorvaldur. Verið sé að fá almenning til að kaupa bréf í bankanum núna, síðan verði það fjársterkir aðilar sem kaupa þau síðar.
„En það sem gerist svo er að þetta fólk sér að það er búið að fá 10,20, 20 prósenta hækkun á eignina sína og byrjar að selja, hverjir eru það þá sem kaupa? Það eru þeir sem sumir kalla „ryksugur“ og aðrir kalla „hákarla“.“
Stjórnmálafræðiprófessorinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson, blæs á þetta á Facebook.
Það er allt að verða eins og fyrir hrun, þar á meðal Þorvaldur Gylfason með sínar dómsdagsprédikanir, og alltaf verða einhverjir til að hlusta á þær,“ segir Hannes. „Hann er knúinn áfram af hatri á Sjálfstæðisflokknum og hleypir út um allar jarðar með rangfærslur um Ísland. Hegel sagði, að við lærðum aldrei neitt af sögunni. Líklega er eitthvað til í því.“