„Nú er hún loksins komin fyrir augu almennings skýrslan sem Seðlabanki Íslands tók sér tíu og hálft ár til að skila um lánveitingu bankans til Kaupþings 6. október 2008. Tímasetningin er söguleg. Hafi lánveitingin varðað við lög fyrndist meint sök 6. október 2018 þar eð málið var ekki sett í rannsókn.“
Svo ritar Þorvaldur Gylfason í aðsendri grein í Fréttablaðinu í gær.
Hann bendir á að Bankaráði Seðlabankans beri samkvæmt lögum að hafa eftirlit með því að bankinn starfi í samræmi við lög. „Bankaráðinu bar því að biðja um opinbera rannsókn á Kaupþingsláninu. Bankaráðið gerði það ekki þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir. Fundargerðum ráðsins er haldið leyndum.“
Þorvaldur segir aðeins fimm síðum skýrslunnar varið í kjarna málsins, sjálfa lánveitinguna til Kaupþings. „Meginefni skýrslunnar er sjálfsvörn bankans gegn vafasömum aðfinnslum í þá veru að það sé nýrri stjórn bankans eftir hrun að kenna að veðið að baki láninu dugði ekki nema fyrir endurheimt fjárins til hálfs.“
Hann grípur niður í skýrsluna, þar sem segir meðal annars:
„Í Seðlabankanum finnast engin gögn sem túlka má sem lánsbeiðni frá Kaupþingi, þar sem fram koma óskir um lánsfjárhæð, lánstíma og önnur lánskjör ásamt upplýsingum um það hvernig nýta ætti lánsféð ... Ekki var … gerð skrifleg bankastjórnarsamþykkt um lánveitinguna. … Til stóð að ganga frá lánssamningi í beinu framhaldi af undirritun veðyfirlýsingarinnar en vegna þeirrar atburðarásar sem hófst með setningu neyðarlaganna síðar þennan sama dag varð aldrei af því. … Af hálfu Seðlabankans voru Kaupþingi engin skilyrði sett fyrir ráðstöfun lánsfjárhæðarinnar. ... Í Seðlabankanum var engar upplýsingar að finna um ráðstöfun lánsfjárins.“
Þorvaldur vísar til ummæla Davíðs Oddssonar, þáverandi seðlabankastjóra, sem sagðist ekki búast við því að fá peningana til baka, og ummæla núverandi seðlabankastjóra, Más Guðmundssonar, sem segi nú eftir að skýrslan er komin út að engin lög hafi verið brotin. „Betur hefði farið á að láta dómstóla skera úr um þann þátt málsins frekar en eftirmann meints sakbornings,“ segir hann.
Þorvaldur rifjar upp að lánið hafi numið 500 milljónum evra og að daginn eftir, 7. október, hafi verið tilkynnt um að Rússland myndi veita Íslandi lánafyrirgreiðslu að upphæð 4 milljörðum evra, sem Vladimir Pútín Rússlandsforseti hafi staðfest. Af þessu láni varð þó aldrei.
Ekkert nýtt um ráðstöfunina
Hann segir að í skýrslu Seðlabankans komi ekkert nýtt fram um ráðstöfun lánsfjárins. „Fjölmiðlar og dómstólar höfðu áður upplýst að sama dag og Seðlabankinn lánaði Kaupþingi 500 milljónir evra rann þriðjungur fjárins beint til Tortólu. Nánar tiltekið veitti Kaupþing félagi í hlutaeigu eins eigenda bankans lán að upphæð 171 milljón evra og veitti daginn eftir tvö önnur lán, samtals 50 milljónir evra, til tveggja félaga í hliðstæðri eigu (síðara málið er enn fyrir dómstólum).“
„Ekki verður séð að Kaupþing hafi þurft að veita félögum eigenda sinna þessi lán í boði Seðlabankans til að halda velli enda féll Kaupþing þrem dögum síðar,“ heldur Þorvaldur áfram. „Ekki verður heldur séð að Seðlabankinn telji neitt athugavert við þessar lánveitingar eða annan mokstur út úr bönkunum í miðju hruni. Seðlabankinn á einnig eftir að svara því hvers vegna hann hefur vanrækt að heimta upprunavottorð af þeim sem hafa flutt fé til Íslands á vildarkjörum eftir hrun.“
„Sinnuleysi Seðlabankans frammi fyrir lögbrotum í bankakerfinu er áhyggjuefni m.a. vegna þess að ítrekaðar tilraunir bankans til að sölsa undir sig Fjármálaeftirlitið virðast nú vera í þann veginn að takast. Hefði FME sent nær 80 mál til sérstaks saksóknara eftir hrun hefði eftirlitið verið deild í Seðlabankanum? Ekki virðist það líklegt. Væntanlegri innlimun FME í Seðlabankann virðist m.a. ætlað að koma allri meðvirkni með brokkgengum bankamönnum fyrir á einum öruggum stað,“ segir hann.
Þorvaldur segir að sinnuleysið gagnvart lögbrotum snerti Seðlabankann sjálfan. „Einn hrunbankastjóranna þriggja sem rannsóknarnefnd Alþingis taldi hafa sýnt af sér vanrækslu í skilningi laga er kominn aftur til starfa í bankanum. Hátt settur starfsmaður bankans viðurkenndi fyrir sérstökum saksóknara 2012 að hafa rofið trúnað 2008. Brotið var talið hafa fyrnzt 2010. Hinn brotlegi virðist ekki hafa fengið meira tiltal innan bankans en svo að hann er nú meðal umsækjenda um stöðu seðlabankastjóra. Fróðlegt verður að sjá hvernig hæfnisnefnd fjallar um umsókn hans og annarra.“