Þórunn í framboði til stjórnar icelandair

Ný stjórn Icelandair verður kjörin á aðalfundi félagsins næstkomandi föstudag, 8. mars. Þórunn Reynisdóttir forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands er óháður frambjóðandi til stjórnar.

Þórunn hefur yfir þrjátíu ára reynslu af stjórnunarstörfum í ferðaþjónustu. Hún hefur meðal annars haft með höndum stjórnunarstörf hjá hótelum, ferðaskrifstofum og flugfélögum. Þórunn hóf feril sinn hjá Flugleiðum, þar sem hún hefur varið yfir tuttugu og fimm árum af starfsævi sinni. 26 ára varð hún stöðvarstjóri Flugleiða á Kastrup í Kaupmannahöfn eftir sex ára starf að sölumálum félagsins. Hún var hótelstjóri Hótel Loftleiða í þrjú ár og stýrði sölumálum Hertz bílaleigunnar um sex ára skeið. 

Þórunn var forstjóri ferðaskrifstofunnar Destination Europe í Maine, Bandaríkjunum, um sex ára skeið, átti og rak AVIS bílaleiguna á  Íslandi í sex ár og starfaði sem sölu og markaðsstjóri Iceland Express. Þórunn var um tíma ráðgjafi Isavia um markaðssókn í Bandaríkjunum. 

Í fréttatilkynningu frá Þórunni kemur fram að hún telji mikilvægt að stjórnarmenn í Icelandair hafi beina reynslu af störfum að ferðaþjónustu.