Þórunn Egilsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, hefur greinst með brjóstakrabbamein. Hún þarf að fara í mikla meðferð við því og hefur því dregið sig í hlé frá þingstörfum. Þórunn greinir frá þessu í stöðuuppfærslu á Facebook síðu sinni.
Í stöðuuppfærslunni skrifar Þórunn: „Svo háttar til að ég hef fengið stórt verkefni til að takast á við í lífinu. Ég hef greinst með brjóstakrabbamein. Það er þess eðlis að ég þarf að fara í harða meðferð gegn því. Þess vegna mun ég draga mig út úr þingstörfum og kalla inn varamann.“
„Ég óskaði ekki eftir þessu verkefni frekar en nokkur annar sem fær þetta tilboð í lífinu. En ég ætla að einhenda mér í verkið af öllum mínum mikla þunga,“ bætir hún við.
Þórunn skrifar að lokum: „Ég hef aldrei farið í baráttu til að tapa og hyggst ekki byrja á því núna. Bjartsýn, einbeitt, ákveðin og umvafin mínu fólki ætla ég að takast á við verkefnið.“
Þórunn er fjórði varaforseti Alþingis og þingflokksformaður Framsóknarflokksins. Willum Þór Þórsson þingmaður verður þingflokksformaður flokksins í fjarveru hennar.